Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Dagbók
Viðbrögð: Engar athugasemdir
Að fylgjast með mér í Hot Yoga er eflaust svipað og að hlusta á Tóta tölvukall syngja aríu. En mér er sama. Þetta er frábær æfing sem hefur komið mér verulega á óvart. Aldrei grunaði mig að Yoga væri svona erfið æfing. Ég hef æft ýmislegt um ævina og er Hot Yoga með því erfiðasta sem ég hef prufað (og þá er ég ekki að bera Yoga saman við hraðskák).
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Gagnrýnin hugsun, Heilbrigðismál
Viðbrögð: 1 athugasemd
Ég rakst á undarlega frétt á vefsíðu Reykjavíkurborgar: „Ókeypis Bowen meðferð í Vesturbæjarlaug“. Í fréttinni kemur fram að Halla Himintungl*, „menntaður Bowentæknifræðingur“, ætli að bjóða upp á ókeypis Bowen meðferð fyrir gesti Veturbæjarlaugar. Í ítarefni sem fylgir fréttinni segir svo að Bowen tækni „virki vel“ á fólk sem „þjáist af bakverkjum, brjósklosi, mígreni, hnémeiðslum, liðagigt, háls- og herðaverkjum, astma, kvíða, ofvirkni, þunglyndi og svefnleysi.“ Enn fremur eru börn, unglingar og ófrískar konur sérstaklega hvattar til að nýta sér meðferðina.
Vandinn er sá að engar rannsóknir hafa verið birtar í ritrýndum fræðiritum sem sýna fram á þennan stórkostlega lækningarmátt Bowen tækninnar. Þetta er auðvitað ekki tekið fram í umræddri frétt. Enda kannski óþarfi?
Það er gagnrýnivert að skottulækningar séu auglýstar og kynntar með þessum hætti á opinberum vef Reykjavíkurborgar. Sérstaklega þegar börn og unglingar eru hvattir til að nýta sér þessa meðferð. Sem borgari hlýtur maður að geta gert ráð fyrir því að meðferð í boði borgarinnar sé byggð á einhverju öðru en sandi.
* Ég er ekki að grínast. Það skal tekið fram að Halla Himintungl er líka sérfræðingur í tarrotlestri, stjörnuspeki, reiki, tunglgöldrum og fleiri ósannreyndum aðferðum.
Tengt efni:
Óhefðbundinn fréttaflutningur (um gagnrýnislausa umfjöllun fjölmiðla um Bowen tækni)
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Ríki og trú
Viðbrögð: Engar athugasemdir
Undanfarna daga hefur eðlilega farið mikið fyrir umræðunni um aðskilnað ríkis og kirkju. Þá umræðu þekki ég vel enda verið þátttakandi í henni í mörg ár. Hér fyrir neðan eru að finna fjölmargar greinar, heimildarmynd og fyrirlestur um aðskilnað ríkis og kirkju. Ég hvet sem flesta til að kynna sér þetta efni og taka afstöðu í þessu mikilvæga máli.
Höfundur: Sigurður Hólm Gunnarsson
Efnisorð: Málefni barna, Ríki og trú
Viðbrögð: Engar athugasemdir
Ég á varla til orð yfir framkomu Karls Sigurbjörnssonar, biskupi „Þjóð“kirkju Íslands, í fjölmiðlum undanfarna daga. Hæfni hans til að taka á kynferðisafrotamálum innan kirkjunnar er engin. Framkoma hans í Kastljósinu í gær var til skammar. Maðurinn gat ómögulega komið því skýrt til skila að hann TRYÐI þeim konum sem hafa ásakað forvera hans um svívirðilega glæpi. Ekki var heldur að sjá að hann væri REIÐUR yfir þeim glæpum sem hafa átt sér stað innan kirkjunnar? Nei. Viðbrögðin voru, það sem ég kalla helvítis mjálm (og óviðeigandi glott) um ekki neitt. Bendi á ágæta samantekt Illuga Jökulssonar hér…
Satt best að segja skil ég ekki allt það góða fólk sem hefur ekki nú þegar sagt sig úr Þjóðkirkjunni vegna þessa máls og reyndar annarra (t.d. afstöðu sumra þjóna kirkjunnar til barnaverndarlaga). Líklegast er ég óhæfur til að hafa þessa skoðun, enda húmanisti og hef ekki tilheyrt kirkju í mörg ár. Ég held ég geti þó fullyrt að væri ég enn trúaður og hefði verið skráður í Þjóðkirkjuna í gær þá væri ég búinn að segja mig úr henni í dag.
Hvað sem því líður þá er löngu kominn tími til að aðskilja ríki og kirkju. Samkvæmt nýjustu fréttum eru bæði forsætisráðherra og fjármálaráðherra sammála mér í þeim efnum.
Fleyg orð
eftir Aristotle
Efnisorð
Atvinnu- og efnahagsmál Bókasafn Einelti Ferðalög Fjölmenning Fordómar Gagnrýnin hugsun Heilbrigðismál Heimsmynd Heimspeki Hugmyndafræði Klámvæðing Menntamál Pólitísk einvígi Ríki og trú Ríkismenning Ríkisumsvif Siðmennt Stjórnmál Söguhorn Trú Tónlist Utanríkismál Vísindi Vísun
WP Cumulus Flash tag cloud by Roy Tanck and Luke Morton requires Flash Player 9 or better.
Nýjar athugasemdir